Mjááá...!!!!
24.07.2007 22:29:33 / Katrin

obb bobb bobb










What Pill Should YOU Be Taking?
Patient Name: Katrin
Prescription: Katrinexor
Effects: Eliminates stupidity instantly
 
'What Pill Should You be Taking?' at QuizGalaxy.com



» 0 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 17:28:20 / Katrin

Haha einn eitt svona dót :)

1.Miðnafnið þitt: 2. Aldur: 3. Single or Taken: 4. Uppáhalds bíómynd: 5. Uppáhalds lag: 6. Uppáhaldshljómsveit: 7. Dirty or Clean: 8. Tattoo eða göt: 9. Þekkjumst við persónulega? 10. Hver er tilgangurinn með lífinu? 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? 12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? 13. Besta minningin þín um okkur? 14. Myndir þú gefa mér nýra? 15. Segðu eitthvað skrýtið um þig: 16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik? 17. Getum við hist og bakað köku? 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig? 20. Finnst þér ég góð manneskja? 21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið? 22. Finnst þér ég aðlaðandi? 23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? 24. Í hverju sefuru? 25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? 26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? 27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? 28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 01:04:18 / Katrin

yeah

það eru komnar myndir frá humarhátíðinni :D 

p.s  sorry fólk.. er alleg hætt að nenna að blogga.. en það kemur seinna :o


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 00:27:12 / Katrin

híhí sorry Kolla.. stal þessu frá þér ;Þ

Haha og ég er Vog ;Þ

Hrútur (20. mars - 20. apríl): Þú ert óþolinmóður og fljótfær egóisti, góður að lofa öllu fögru, en fljótur að gefast upp og láta aðra þrífa upp skítinn. Þú ert keppnismaður og sérlega klár í að keppa við ranga aðila og slá tilgangslaus högg útí loftið. Þú ert kvikindi, en það hjálpar hversu einlægur, barnalegur og einfaldur þú ert.

Naut (20. apríl - 21. maí): Þú ert latur og þrjóskur, enda löngu staðnaður og fastur í sama farinu. Peningar og þægindi eru það eina sem þú hugsar um, enda háður nautnum, mat, sykri og skynörvandi efnum. Þú hreyfist ekki úr stað og selur sannfæringu þína hæstbjóðenda. Þú ert lítið betri en stífluð rotþró.

Tvíburi (21. maí - 20. júní): Þú ert eirðarlaus og yfirborðslegur, alltaf á hlaupum frá einu tilgangslausu verkefni í annað, með hundrað ókláruð járn í eldinum. Þú ert sí ljúgandi, enda sérfræðingur í að gefa loforð sem þú getur ekki staðið við. Vissulega ertu vel gefinn, en þú sóar hæfileikum þínum í blaður og óþarfa.

Krabbi (21. júní - 23. júlí): Þú þykist vera töff, en ert í raun aumingi og tilfinningasósa, og getur ekki talað og tjáð þig, nema með því að væla og kvarta. Þú ert fastur í fortíðinni og munt því fyrr en síðar kafna í drasli og gömlum minningum. Þegar þú reiðist þá fer allt í einn graut og upp blossar grimmd og hefnigirni. En svona dags daglega þá ertu fúll, þunglyndur og sjálfsvorkunnsamur.

Ljón (22. júlí - 23. ágúst): Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.

Meyja (23. ágúst - 23. september): Þú ert einn leiðinlegasti maður í heimi, alltaf að kvarta, gagnrýna og skipta þér af fólki, en segir aldrei neitt sem gagnast öðrum. Þú ert alltaf á hlaupum, þykist vera duglegur, en gerir aldrei neitt af viti, ekki frekar en stormur í tebolla. Þú ert stressuð taugahrúga.

Vog (23. september - 22. október): Þú þykist vera ljúfur og vingjarnlegur, en ert í raun falskur og eigingjarn, brosir framan í fólk, en lýgur og ferð bakvið aðra. Það tekur þig óratíma að taka ákvaðanir, en þegar það loksins gerist, ertu óhagganlegur, enda of latur til að hugsa málin aftur og of upptekinn af því að smjaðra fyrir öðrum.

Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið.

Bogmaður (22. nóvember - 21. desember): Þú ert týpan sem grautar í öllu, en kannt ekkert, enda alltaf á hlaupum úr einu í annað. Þú átt erfitt með að þekkja takmörk þín, ert agalaus, flýrð óþægindi og veist ekki hvernig þú átt að nýta hæfileika þína. Ef þú nærð tökum á einhverju, þá hleypur þú í verkefni sem þú ræður ekki við.

Steingeit (21. desember - 20. janúar):
Þú ert stífur og vansæll vinnualki, fastur í tilgangslausum siðum og reglum, alltaf að skipta þér af öðrum og segja þeim að gera það sem þú getur ekki gert sjálfur. Þú ert snobbaður og þráir stöðutákn, enda með minnimáttarkennd sem þú heldur að hægt sé að breiða yfir með titlum og merkjavöru.

Vatnsberi (20. janúar - 19. febrúar): Þú ert sérvitur og skrýtinn, og alltaf svo langt á undan samtímanum að enginn skilur þig eða getur notað hugmyndir þínar. Vissulega ertu svalur, en þú ert svo sjálfstæður, ópersónulegur og hræddur við raunverulegan innileika, að þú ert í raun alltaf einn, frosinn í einskis manns landi. Týndur á skýi í háloftunum.

Fiskur (19. febrúar - 20. mars): Þú ert rugluð og týnd sál og hefur ekki hugmynd um hvernig þú átt að nýta hæfileika þína eða í hvaða átt þú átt að fara. Þú vilt vera alls staðar og upplifa allt. En þar sem þetta er ómögulegt, þá fer allt í vitleysu. En það gerir ekkert til, þú ert sérfræðingur í sjálfsblekkingum og því að flýja raunveruleikann.

Endilega segið skoðun ;Þ


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 16:49:03 / Katrin

Hvað gerðir þú..?

mitt er semsagt : Ég naut ásta með Mömmu þinni Afþví að mamma sagði mér að gera það ... haha sick

Veldu mánuðinn sem þú fæddist í:

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá
Apríl- Ég horfði á
Maí- Ég fróaði mér með
Júní- Ég slefaði á
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaðiá

Veldu núna afmælisdaginn þinn:

1. Hóru
2. Kærasta/una þína
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir
8. Kennara
9. Mömmu þína
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema
14. Jónsa í svörtum fötum
15. Stein
16. DVD spilara
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson
25. 50 cent
26. Kynskipting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu Þriðja stafinn í (eftir)nafninu þínu:

A- Afþví að ég elska súkkulaði
B- Afví að mér leiddist
C- Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar
D- Af því að þarf alltaf að prumpa
E- Af því að hjartað mitt er tvemur nr of lítið
F- Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G- Afvþví mér finnst egg góð
H- Afþví að ég er á sýru
I- Afþví ég misteig mig
J- Afþví ég er með vörtu
K- Afþví mér líkar Cheer
L- Afþví að ég var skökk/skakkur
M- Afþví ég var full/ur
N- Afþví að mamma sagði mér að gera það
O- Afví ég er hýr
P- Því ér er einmanna
Q- Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R- Afví að ég er gröð/graður
S- Því mig langar að deyja
T- Því ég hata skóla
U- Því ég þarf að fróa mér
V- Afþví að ég elska náttfata party
W- Afþví að það róar mig
X- Af því að ég elska marmelaði
Y- Afþví að ég elska prump
Ö- Því ég er að safna rassahárum


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.02.2006 18:28:31 / Katrin

omg...

Og ég var skoruð á að gera þetta.... :o

Fjögur störf sem ég hef unnið við í gegnum ævina;

  1. Unglingavinnan 
  2. Hagkaup Kringlunni
  3. Krónan Skeifunni
  4. Nóatún Hamraborg og Furugrund

Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. White Chicks
  2. Svampur Sveinsson 
  3. Finding Nemo
  4. Bruce Almighty

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Álakvísl (Árbær) 
  2. Völvufelli (Breipholti) 
  3. Út í sveit (pnr 801)
  4. Lækjarfit (Garðabæ)

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

  1. Friends
  2. Simpsons 
  3. Cheers 
  4. O.C.

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

  1. Kanarí
  2. Mallorca 
  3. Spánn 
  4. England, Holland, Þýskaland, Danmörk, Svíþjóð, Noregur, Færeyjar

Fjórar bækur sem ég les oft..... í:

  1. Ég..
  2. Les..
  3. Ekki..
  4. Bækur..

Fjórir staðir sem ég myndi heldur vilja vera á núna:

  1. Kanarí 
  2. Danmörku 
  3. Bandaríkjunum 
  4. Jamaica

4 manneskjur sem ég skora á að gera þetta eru:

  1. Fríða 
  2. Karen 
  3. Maren 
  4. Ingunn

» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 14:34:10 / Katrin

Kreisí helgi skom...

Eigum við eikkað að vera ræða hvað þetta var fucked up helgi eða..? ok.. ég gerði ekki sjitt a föstudaginn.. var bara að horfa a idol.. svo Kjartan til mín ;* og vorum eikkað bara hadna.. síðan kom Fríða og Karen í heimsókn og eikkað.. á laugardaginn þá fór ég til Helgu og vorum eikkað að reyna að baka fyrir mömmu hennar þvi hun atti ammæli... en baka köku ? við? hahahha við bökuðum bara eikkað slys skom og það lenti siðan bara i ruslinu skom... síðan kom Finnur kærasti Helgu og við fórum að drekka og eikkað.. Hulda var líka eikkað hadna.. og Sísí... svo eikkerjir vinir Finns.. síðan röltum við niðrí bæ... splittiðumst siðan a laugarveginum.. eg og Helga fórum á Gaukinn en strákarnir eikkað annað... allt í lagi með það.. við skemmtum okkur bara nokkuð vel og læti skom... síðan þegar dáldið var búið að líða af nóttinni haldiði ekki að þá hafi bara að eikker fæðingarhálfviti hafi stolið leðurjakkanum hennar Helgu, sem er þó nokkuð dýr...!!! asnalegt... merkilegt var að töskurnar okkar voru ofan á jakkanum hennar.. og þeim var ekki stolið.. bara jakkanum og bjórnum hennar! er fólk alveg virkilega brenglað í hausnum eða?? við eikkað töluðum við dyraverðina og þeir sögðust ætla að láta vita ef hann finnst.. en þeir sögðu lika að það var buið að stela 6-7 í viðbót... bara vá skom.. en já.. ég var eikkað orðin batteríslaus hadna og var alltaf að seta kortið mitt í Helgu síma.. og það endaði með því að ég týndi batteríinu mínu.. þannig að það má segja að ég sé bókstaflega batteríslaus.. omg.. en já.. síðan kom Kjartan ;* :D og sótti okkur og skutlaði okkur heim til Helgu.. hann lánaði mér síma sem hann átti.. ohh hann svo góður essi elska ;** ... svo vaknaði eg eikkað um tvö leytið í gær með alleg hausverk dauðans.. sjaldan fengið sona mikinn hausverk.. áds.. og svo var eikkað matarboð hjá pabba... gegt gott marr.. en já þeir sem ekki vita þá er tölvið mitt bilað og ég er í vinnunni minni núna að blogga.. sad sad.. vaktstjórinn búinn að reka mig úr tölvunni nokkrum sinnum.. meina.. akkuru ?? það er ekkert fyrir mig að gera... en já... allir orðnir að kreisí hérna... ég er líka orðin dáldið handlama... well.. C ya l8ter ;***

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 19:47:37 / Katrin

áááii :(

hey ég held að ég sé tognuð í hálsinum eftir þetta kjaftæði í gær... ekki sniðugt sko.. þetta er ekki eðlilegt hvað mér er illt.. vont að tala... vont að hósta.. vont að vera í bíl þegar hann tekur af stað.. vont að geispa.. þetta er hrikalegt.. svo komu vörur i dag (i vinnunni) og eg gat varla lyft hveiti utað bakinu a mer... en eg vona að þetta fari að lagast.. nenni ekki að vera svona endalaust.. well.. ég er farin að leggja mig.. er svo treyttur *geisp*  áááiii... ohh.. jæja bleble


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2006 00:27:03 / Katrin

Gaman og ekki gaman...

humm.. þetta var nu meiri dagurinn.. eg labbaði til Fríðu eftir vinnu og svo fórum við og Dagny á Rútstún að renna okkur... sóttum lika Kareni.. við vorum eikkað hadna að renna okkur á stígasleða og snjóþotu og plastpokum og Fríða og Dagný voru líka með tvö snjóbretti... ég þorði nottla ekki fyrst a það og let mig nægja stígasleðann og sona... síðan píndu þær mig til að prófa bretti... vitiði það að eg hef aldrei upplifað annað eins... ég eikkað fer af stað og siðan neðst i brekkunni þá bara datt Katrín litla á hausinn... þá meina ég sko bókstaflega á hausinn!!! sko með hausinn fyrst síðan í eikkern fáránlegan kollhnís.. hausinn á mér beyglaðist eikkað og hálftíma seinna þá var ég farin að verða frekar illt í hálsinum... ekki sniðugt.. ég fer aldrei aftur á snjóbretti :( síðan kom Helgi sem er að vinna með okkur og renndi ser með okkur... var víst að sýna sig gegt á brettinu... síðan ætlaði ég og Fríða að renna okkur saman á svörtum ruslapokum.. við klæddum okkur í þá sko.. ég ætlaði að fara sona fyrir framan hana en neinei.. mín bara flýýýýgur á hausinn.. og beint á rassgatið.. þannig að ég er að drepast í rófubeininu og bakinu líka.. mér leið eins og hálvita.. hehe.. síðan var Fríða og Karen að renna sér á snjóbrettinu sona sitandi.. og Dagný og Helgi íta þeim af stað.. þær fóru óvart á eikkern stökkpall og flugu eikkað út í rassgat og Fríða lenti með hendina undir brettinu.. og hún er að drepast í hendinni og bakinu líka... þetta var skrautleg ferð skal ég segja ykkur... við lentum líka oft í eikker tré sem voru hadna... núna sit ég heima að drepast úr kulda... því nebbla fyrst þegar við komum hadna i brekkuna þá byrjaði að hellirigna og allt varð verulega blautt eikkað... ég á eftir að vera eikkað beygluð á morgun með harðsperrur og læti... en já.. ekki meira í bili... later...


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.01.2006 03:17:55 / Katrin

Dæs

Omg haldiði ekki bara að síminn minn sé ónýtur :frown: ekki gaman.. hann er sko búinn að vera bilaður síðan á mánudaginn.. slekkur og kveikir á sér sjálfur og sona.. alleg billjón sinnum í röð... þessi sími er ekki orðinn árs gamall sko.. en því miður var hann keyptur handa mér úti þannig að ég get ekki kvartað í ogvodafone eða símann... urg.. Það eru bæði kostir og gallar að vera símalaus... kostirnir eru þeir að marr fær frið frá vitleysingum... gallarnir að ég get ekki hringt þegar ég vil.. leiðinlegt að þurfa spurja aðra hvort marr megi hringja hjá þeim... en já... föstudagurinn þrettándi stóð alleg undir sínu sko... dagurinn byrjaði ekki vel skal eg segja ykkur.. ég byrjaði á því að sofa yfir mig.. folkið i vinnunni er svo vitlaust að það er buið að gleyma að siminn minn se bilaður en samt reyndu þau að hringja endalaust i hann.. það var ekki fyrr en um tíuleytið sem þau föttuðu að hringja í heimsímann.. (ég átti sko að mæta 9) svo var ég líka að pirra mig á því að það vantar starfsfólk til að vera á kassa... ég þoli ekki að vera á kassa.. síðan eru viðskiptavinirnir allta svo stressaðir að þeir stressa mann bara upp sko.. samt var alleg ágætt i vinnunni inna milli sko... ég er mikið búin að vera velta þvi fyrir mer hvort ég ætti að sækja um aðra vinnu eða biðja um launahækkun.. það eru ekkert spes laun þadna sko...

allavega... eftir vinnu þá sótti systir mín mig og við forum heim til hennar að taka til og eikkað... siðan hringdi Andrea og bauð okkur í mat... fengum okkur tortillas og eikkað síðan skutlaði systir mín heim.. síðan eikkern tímann áðan þá kom Fríða í heimsókn í smástund... núna er bara spurning um að reyna fara sofa eikkað í hausinn á sér.. ætti marr að fara djamma á morgun eða hvað..?? er eikkað sérstakt í gangi?? æi veit ekki.. ég er bara eikkað svo ekkert spennt fyrir að djamma núorðið... djammið um áramótin fór nottla alleg með mann.. marr er ekki meika neitt lengur... en þetta er pæling... well ég er farin að sofa Gn ;*

p.s.  pælí krípí badni  


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 19:48:29 / Katrin

daddara...

æjæj.. þetta er búinn að vera meiri dagurinn... *sigh* .... omg ég er að hanga í tölvunni í vinnunni því ég á mér ekkert líf og ég er að bíða eftir að Fríða er búin að vinna svo við getum farið að gera eikkað sniðugt... hun er reyndar buin klukkan átta en allavega..



ég er loksins farin að sofa a nóttinni... það er búið að taka 5 daga fyrir mig að reyna snúa sólarhringum við... ég var alltaf ósofin í vinnunni og sona.. svaf sona klukkutima yfir alla nóttina og sona... sofnaði siðan alltaf þegar yfir sjónvarpinu eftir vinnu.. svo var eg vaknandi sona tvö, þrjú um nóttina og vakti alleg þangað til ég átti að fara vinna... en í gær ákvað ég að halda mér vakandi alleg þangað til sona ellefu og sofa siðan heilan svefn... en nei mín sko sofnaði um níuleytið í gærkvedli og náði að sofa alleg til hálf níu í morgun... djöfull er ég ánægð með mig.. ég er svo stolt af mér.. heheheh...



en já... ég er ógislega sammála Helgu sambandi við DV ( http://www.blog.central.is/h3lgan ) þúst bara fólk er fífl.. og ógislega skítuga fólkið sem vinnur hjá DV ætti bara fara til Íraks og vera skotin í hausinn og punginn og sollis... þetta er nottla ekki eðlilegt... ég er ógislega brjál sko... ég sá etta á forsíðu DV í fyrradag og ég var bara ómagad... síðan þegar ég kom heim úr vinnunni sama dag þá sagði pabbi mér að amma hafi hringt i hann og sagt að maðurinn hafi stitt líf sitt (amma býr sko á ísó).. ég var bara HAAA?? ég hvet alla til að mæta í mótmælagöngu til DV-hússins og gerið allt vitlaust !!!! (fólk má koma með haglabyssu ef það vill)....





en jæja nenni ekki að skrifa meira í bili... ég er nebbla að fara héðan úr vinnunni... komin með ógeð... síja ppl :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 00:24:57 / Katrin

híhí

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 00:24:00 / Katrin

;D

HELLO !!! GLEÐILEGT NÝTT ÁR FOLKS.. ;D ;D ;D ;D

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2005 18:41:09 / Katrin

Djamm í kveld ?

Æi núna er Helgan mín í danmörku.. hún fór á fimmtudaginn og kemur heim um miðnætti annaðkvöld... það er búið að vera svo tómlegt í vinnunni án hennar... marr er alltaf eikkað einn út að reykja.. ekkert gaman.. en já.. er það djamm í kveld ? það er sko spurning.. ég er nebbla vinna i fyrramalið.. ég ætlaði á djammið í gær.. en var að vinna til 21.00... þa for eg bara heim með Fríðu.. svo hringdi Guðrún systir og spurði hvort við vildum koma með þeim í bíó á Waiting... við skelltum okkur með, Dagný og Andrea komu líka með... þetta var alleg ágæt mynd.. samt allt öðruvísi en ég bjóst við.. en við vorum siðan eikkað a rúntinn eftir bíóið og keyptum okkutr pizzu a devitos og sona... ég var komin heim um sona half þrjú, fór beint upp í rúm og sofnaði... ég vaknaði semsagt um fimm leytið áðan... og er ennþa uppi í rúmi og er að spá hvað ég á að gera við kveldið... Friða var eikkað að spurja mig hvort eg ætlaði að djamma með henni... en ég ætla að pæla aðeins meira í þessu.. allavega i sona hálftíma lengur... en já.. bleble


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.11.2005 21:52:50 / Katrin

fleeeh

Þessi dagur hefði ekki getað verið misheppnaðari.... það var geeeeðveikt mikið að gera i vinnunni... allir að kvarta.. bæði viðskiptavinir og starfsmenn... :^) ég fór eftir vinnu heim til Fríðu og beið eftir henni þar...  svo kom hún og við vorum eikkað að horfa á sjónvarpið og allt í einu steinsofnaði ég.. 8| og vaknaði með hausverk dauðans áðan... Guðrún systir sótti mig og skutlaði mer heim... en núna er ég að bíða eftir Jóhönnu systir komi heim með mat handa mér... svo þoooooli ég ekki að eiga ekki pening... djöfull hlakka ég til að fá útborgað á morgun... get ekki beeeeeðið!!!! og ég vona að ég fá slatta útborgað... því ég á eftir að kaupa allar jólagjafirnar... og ég veit ekki um eina gjöf sem eg ætla að gefa þannig að þetta a eftir að vera pinu erfitt... :$ Spurning hvort marr eigi að fara eikkað að djamma um helgina.. ég á samt að fara vinna á sunnudaginn frá 11-16... er engan vegin að nenna því... en vá.. ég er búin að vera edrú í 3 vikur... það er nottla ekki alveg eðlilegt... fyrir mig... en jæja... ég segi bara bless í bili... marr veit aldrei hvenær ég nenni að blogga næst... ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan